Besti vinur Kiðlings Blómabörn Sólarupprás Sólarupprás

................KIÐLINGUR - jarmar hér !

Blogg

18.2.2009

Minn lukkudagur

Hey, heppin ég!

Sá að það var verið að auglýsa legsteina á afslætti í Fréttablaðinu.

Auglýsingin sjálf - 9. feb


TILBOÐSDAGAR
30-50% afsláttur af völdum legsteinum á meðan birgðir endast.
MOSAIK
Hamarshöfða 4
110 Reykjavík
S: 587 1960 -www.mosaik.is

Maður ætti kannski að skella sér á að kaupa 1-3 stykki legsteina í kreppunni.
Maður veit jú aldrei hvenær maður deyr.  Já eða manns nánustu. Svo getur maður líka selt þá áfram.
Þá er nú gott að getað sagst hafa sýnst smá fyrirhyggju og verslað legstein á spottprís.  Mikið held ég að mamma yfði nú glöð ef ég mætti með nokkra legsteina á lager til að eiga við tækifæri, ha!

Bendi öllum á að nýta sér þessi kjarakaup. Vonum bara að birgðir séu ekki uppurnar.

Skrifað 18.2.2009 kl. 14:25 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.2.2009

Slorug

Við fjölskyldan fórum í veiðiferð niður á bryggju og börnin veiddu heil 30 stykki af kolum.

Svo þegar ég ætlaði að skella fiskunum ofan í sjóðheitan pottinn þá hafa tveir fiskanna ekki alveg verið búnir að geispa úr sér golunni... eða þá lifnað við bullsjóðandi vatnið. Að minnsta kosti fóru tveir að sprikkla í höndunum á mér út á eldavélahelluna, þaðan sprikklluðust þeir út á eldhúsborð og alla leið niður á gólf á meðan ég fálmaði og gólaði af viðbjóði yfir öllum slímugu slorslettunum og vatnsgusunum sem gengu um allar áttir. Að lokum kom ég helvítunum oní fjandans pottinn og skellti hlemminum á og hélt fast... þar sem þeir héldu áfram að djöflast um í dauðaslitrunum.  Þá var ég orðin sótrauð í framan úr reiði og kallaði urrandi á veiðimanninn sem átti jú alla sökina.  Veiðimennirnir eiga jú að sjá um að bráðin sé DAUÐ þegar húsmóðirin  fær  hana í hendurnar. 

Ég ýkti ekki gramm þegar ég segi að allt eldhúsið var alþakið slori. Innréttingar, hraðsuðuketill, blóm í glugganum, gólf og báðir gluggar voru lagðir fiskislepju sem dropaði seig niður... alveg ofan úr loftinu... svo ekki sé minnst á útgangin á sjálfri mér. Slorblaut með maskara lekandi niður báðar kinnar, rauðar eldglæringar úr augunum og bláa reykbólstra út úr eyrunum.  Guð sé lof að bæði börnin voru út að leika sér og heyrðu ekki óguðlegan munnsöfnuðinn.

ALDREI skal ég aftur sjóða fisk nema að hann hafi fyrst verið frosinnog hana nú !!!!!!

Skrifað 18.2.2009 kl. 14:08 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.2.2009

Rauðhærðir eru vandræðagripir!

MERKILEGAR STAÐREYNDIR UM RAUÐHERÐA

- gen í 16 litning sem heitir MC1R ber ábyrgð á rauðum háralit og er í raun genagalli
- Aðeins 4% Evrópubúa eru rauðhærðir
- Rauðhærðir eru hrekkjóttari en aðrir
- Rauðhærðir þurfa 2-3 sinnum sterkari deyfingu og svæfingarlyf en aðrir og vakna oftar upp í miðjum aðgerðum en aðrir
- Rauðhærðir verða síður gráhærðir, heldur ljósherðir og svo hvíthærðir
- Eitthvað óútskýranlegt í fari rauðhærðra eykur hjartslátt nálægra einstaklinga
- Rússland þýðir "land rauðhærðra" til heiðurs Rúrik víkings sem var rauðhærður
- Í Biblíunni er Evu hans Adam lýst sem rauðhærðri
- Hafmeyjur eru of með fagur-rautt hár niður að mitti
- Rauðhærðar konur voru líklegari en aðrar til að verða dæmdar nornir og brenndar á báli
- hægt er að útiloka eða sanna að morðingi hafi verið rauðhærður ef hann skilur eftir sig DNA með MC1R geninu
- einstöku sinnum fæðast rauðhærðir svertingjar í Afríku og trúa menn þar í landi að það gerist þegar mök eru hafðar við konur á tíðum (á túr)
- rauðhærð börn voru oftar dæmd eða álitin óskilgetin þar sem háraliturinn fannst ekki í fjölskyldunni
- genið sem veldur rauðum háralit getur legið í dvala í 8 kynslóðir
- býflugur stinga rauðhærða frekar en aðra
- Í grískum miðaldasögum er sagt að rauðhærðir breytast í vampírur þegar þeir deyja

he he he...skemmtilegt og útskýrir ýmislegt!

Skrifað 18.2.2009 kl. 11:56 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 92808
Samtals gestir: 35789
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 09:16:30
Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 92808
Samtals gestir: 35789
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 09:16:30
eXTReMe Tracker