Blogg
26.8.2008
Að skríða saman
Þá er maður að skríða saman eftir aðgerðina og þessi 24 spor verða að flytja sér að gróa því ég er að verða vitlaust á því að komast ekki í heitupottana. Er með potta-fráhvarfseinkenni á háu stigi. Var meiri að segja sprautuð með morfíni á laugardaginn, svo slæmt var það... hehehe.
Börnin byrjuðu í skólanum í dag. Þá fer allt að komast í rútínu hjá manni. Veit ekki alveg hvort mér finnst það gott eða slæmt, en við höfum örugglega gott af því að koma einhverri reglu á hlutina.
Ekkert hefur spurst til kattanna. Við höfum fengið nokkur símtöl og komin að sækja ketti sem taldir voru okkar, en því miður voru þetta ekki þeir. Það eru nokkuð margir líkir kettir á sveimi hér á Hólmavík. Þannig að við erum enn að bíða og vona að þeir skili sér og séu á lífi.
Hvað er svo að frétta af ykkur?

15.8.2008
Sumarið er búið :_(
Æ nú er farið að kólna og fríið búið. Mikið askoti er maður nú búin að hafa það gott í sumar.
Við erum búin að fara í geggjaðum ferðalög í Flatey, til Hafnar í Hornafirði, á Laugarvatn, Svanshól, Reykhóla og til Reykjavíkur. Við erum búin að fá að hafa öll börnin með okkur í dágóðan tíma þannig að það er búið að vera mikið fjör og mikið kaós...hehehe.
Töluverður gestagangur hefur verið hjá okkur í allt sumar og höfum við reynt að gera vel við alla, sérstaklega þá sem stoppuðu eitthvað.
Toppurinn á sumrinu var án efa Flateyjarferðin sem var farin í brakandi blíðu. Þar háfaði ég mína 2 fystu lunda og þurfti að borga fyrir það eitt stykki gallabuxur sem að helv. múkkinn ælid á.
Er búin að setja fullt af myndum af sumrinu inn á barnaland Linkur á myndir
Stoltur veiðimaður

Flettingar í dag: 20
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 92818
Samtals gestir: 35791
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 15:31:07
Flettingar í dag: 20
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 92818
Samtals gestir: 35791
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 15:31:07