Besti vinur Kiðlings Blómabörn Sólarupprás Sólarupprás

................KIÐLINGUR - jarmar hér !

Blogg

31.3.2008

Ótitlað

Af hverju fór mér að leiðast????

Svolítið merkilegt er að gerast. Í fyrsta skipti á ævinni er mér farið að leiðast. Hvað er táknar það?  Þetta er tilfinning sem ég hef aldrei rekist á áður á lífsleiðinni, jú nema þá helst á unglingsárunum þegar maður var fastur upp í sveit.  Hvað veldur? 

Nú er ég að gera átak í að slaka á og er meiri að segja alveg poll-róleg núna og mér alveg hund-drullu leiðist.  Er bara "dówn" og finnst ég hálf týnd.  Bara þetta ömurlega blogg til að tjá sig við, dæs!

Hvað gerði ég á sama tíma í fyrra....?   Ákvað áðan að lesa bók, því það var líklega það sem ég hefði gert áður.  En nei, það passar ekki þetta árið.

Börnin eru út að leika og voru ekki til í að gera neitt með mér... bara vinunum. Hmm!   Það er ófært norður og skítaveður nenni hvorki út að labba eða í sund. 

Maður hefur alveg lokað sig af og hvorki ræktað vinskap við neinn né kynnst nokkurri sál hér á Hólmavík þannig að manni langi til að droppa inn hjá einhverjum í kaffi... eða þannig að manni langi að skottast með einhverri góðri vinkonu.


Vildi ég ætti kindur eða hænur.  Þá gæti ég mokað skít eða eitthvað. 

Skrifað 31.3.2008 kl. 14:16 af

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.3.2008

Yfir 3200 heimsóknir í mars. "What the....!"


Komin heim á Hólmavík eftir 3 vikna útlegð. Búin að gera mest lítið þannig séð. Svona rétt að reyna að gefa skrokkinum og heilabúinu tíma til að skríða saman.  Reyndar skrapp ég út í Breiðafjarðareyjar eða í Hvallátur um páskana og fór sem áhorfandi á skarfa-veiðar. Veiddum 6 skarfa... einn rosa flottan toppskarf sem kannski verður stoppaður upp.  Dvaldi þar á eyðieyju með 9 öðrum karlmönnum og var eina konan.  En slapp sem betur fer alveg heil frá því öllu saman.  Karlmennin ældu svo til skiptis í sama pottinn á leiðinni í land. Allir að drepast úr sjóveiki í brælunni.  Prinsessan ég hafði verið svo sniðug að láta kærastan sigla með mig í sér ferð í land...áður en að brælan skall á...hehehe.  Stóð svo brosandi og sperrt á bryggjunni og tók á móti þeim grænum, gráum, fölleitum og útældum.  Þvoði meiri að segja ælupottinn þeirra.

Börnin mín koma svo heim seinna í dag eftir 3 vikna dvöl með pabba sínum á Svanshóli. Þau hafa verið dugleg í útiverunni og vel útitekin og hraustleg.  Maður er eins og hvítur hundaskítur við hliðina á þeim.  Hlakka rosalega til að fá þau heim, er búin að sakna þeirra mikið.

Annars er allt gott að frétta.  Hlynur keypti Toyota Land Cruiser sem ég á að druslast á og vonandi tekst mér ekki að klessukeyra hann í bráð.  Á víst ekki að kaupa dýran bíl og taka lán.  Sumir eru meira gamaldags en aðrir í fjármögnunarmálum.  Kannksi eins gott á þessum ójafnvægistímum.  Annars koma hann og börnin hans tvö um helgina. Þannig að það verður kátt á hjalla hjá okkur næstu daga.  Dóttir hans  verður einmitt 5 ára á morgun.  Partí á teikniborðinu hjá mér.... kökubakstur á döfinni í kvöld.

Annars er ég búin að vera ALEIN á Víkurtúninu alla síðustu viku. Enginn karlmaður, engin börn, enginn hundur og enginn köttur.  Ótrúlega einmannalegt. Er búin að uppgötva það að ég kann ekki að vera ein inn á eigin heimili...ég bara flippa út af leiðindum!  Fór auðvitað að þrífa allt hátt og lágt.... og steinlág svo í aumingjaskap á eftir. Það er nú meira hvað maður er mikill aumingi.  Ef ég væri hestur þá væri búið að skjóta mig.

Já já, nóg í bili.  Hvað er að frétta af ykkur lesendur góðir sem lesa bloggið mitt, ha?  Yfir 3200 heimsóknir á bloggið mitt í mars.  Jeremías og allir hans vinir, maður verður bara dauðfeiminn við að skrifa, roðn!!!



 

Skrifað 28.3.2008 kl. 12:28 af

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.3.2008

7 dagur


Heilabúið freðið. Athyglin og einbeitningin engin. Sef illa, fæ flash back.
Fjórir plúsar af blóði frá nýrum (voru tveir fyrir viku), fer aftur í prufu á eftir og kannski suður í kjölfarið.
Andlega hliðin náði "rock bottom" í gær.... (vonandi), fékk lyf og svaf án þess að vakna í nótt.
Bíllinn dæmdur ónýtur af bæði Sjóvá og VÍS.


Óskar frændi verður í Kompás í kvöld að talar um Kidda sinn (4 ára) sem var keyrður niður fyrir jól og dó. Ökumaðurinn stakk af.

Hvað er maður svo að kvarta og kveina?

Skrifað 11.3.2008 kl. 12:26 af

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.3.2008

Dagur 3

Kom heim.... og svaf í 10 tíma. Ahhh!

Kíkti til læknis áðan. Er með grindargliðnun eftir höggið.. labba um eins og fíla mig eins og ólétt kerling.  Ágætis getnaðarvörn það.  Svo  vöknuðu innyflin til lífsins í morgun eftir tæplega 3 daga verkfall.  Skelfingarlæti það!
Maður er allur lemstraður en mér sýnist nú vera harðara í mér en bílnum...hehe.

Annars bara gott að vera komin heim. Hef ekkert verið heima af viti í 3 vikur og kominn tími til að knúsa ormana sína. Bríanna dauð sér eftir rauða bílnum, en Lói er spenntur fyrir því hvaða bíl ég kaupi næst.  Hannvill auðvitað jeppa.  Ég er ekki frá því að ég skelli mér bara á einn slíkann eftir þessa svaðilför.  Er reyndar óskiljanlega heppinn að hafa kastast sjálf inn í bílinn minn en ekki út og í veg fyrir flutningabílinn. Þyngdarlögmálið stenst ekki... og þetta hefði átt að fara á hinn veginn. Af hverju það var ekki skil ég bara ekki. 

Annars er allt gott að frétta bara. Vonandi fer eitthvað að róast í vinnunni.  Langar til að taka mér smá frí í mars á meðan pabbi barnanna er með þau. Hann kemur á þriðjudaginn og verður með þau í 3 vikur.  Langar ekki að hanga ein heima á meðan.

Kærastinn er í sínum síðasta loðnutúr og á leiðinni á Vopnafjörð til að landa þar...uss uss uss.  Maður hefur ekkert séð hann að viti heldur í margar vikur, nema í einhverjar örfáar stolnar klukkustundir.


Skrifað 7.3.2008 kl. 17:08 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.3.2008

Er ég ódrepandi?

Mikið svakalega var ég nú heppin að tapa ekki lífinu í gær.

Var á leiðinni heim frá Akureyri þegar ég festi mig í snjó í blindbyl á Öxnadal.  Fór út úr bílnum og opnaði afturhurðina (bílstjóra meginn) og teygði mig inn til að ná mér í vettlinga í aftursætinu. Svo vissi ég ekkert fyrr en einhver kona sagði halló halló.

Þá hafði maður á Range Rover komið á fullu niður brekkuna og keyrt á bílinn minn við hliðina á mér, bílstjórameginn... 70 cm frá fótunum á mér. Heppinn að hann klippti ekki af mér fæturna.  Ég sá hann aldrei koma og ég var líka heppinn að ég þrykktist einhvern veginn inn í bílinn en ekki út úr honum og fyrir þann næsta.  Braut reyndar bílstjórasætið þegar ég lenti á því, kýldist svo ofan í gólf og steinrotaðist.  Einhverjar ljúfar konur komu að slysinu og komu að stumra yfir mér 1-2 mínútum seinna, en ég var með kærastan í símanum þegar þetta gerðist. Hann hlustaði á allt saman.... öskrin, höggin og svo bara andardrátt.

Það næsta sem ég heyri er svaka vörubílaflautu og kerlingarnar æpa geggjaðar...komið ykkur frá. Hringið á sjúkrabíl, löggubíl og allt.  Þá hugsaði ég bara....JÆJA!!!.  En svo var höggið ekkert svo mikið frá vörubílnum sem kom niður brekkuna. Bara smá stuðara-dynkur á miðjan bílinn minn.  Ofan á hausinn minn, þar sem ég lá með hann á gólfinu þeim megin sem hann snerti bílinn.

Alla veganna, þegar ég rankaði almennilega við mér þá var ég fyrst ofvirk.  Svo eins og alltaf þá dregur úr manni og maður byrjar að stífna og stirðna. Var flutt með löggu fyrst og svo sjúkrabíl til Akureyrar. Þar fór ég í CT-skann.  Engin brotin bein.  Smá blóð í þvagi (marin nýru), miltað pínu aumt og marið... risa kúla á hausnum og svo bara stíf, marin, toguð og teygð.

Það óhugnanlegasta var að vita að Range Roverinn  var meter frá því að klippa af mér fæturna og ég heyrði hann ekki koma.

Líka óhugnanlegt að heyra vörubílinn koma liggjandi á flautunni og bíða bara eftir högginu og hlusta á konurnar garga.

Hvað skyldi ég eiga eftir mörg líf eftir?


Þarna sést rauði bílinn minn framan á flutningabílnum og Range Roverinn sem keyrði á mig fyrst og kastaði mér fyrir flutningabílinn
.

Æ æ æ...þarna endaði þessi ferð.

Linkur á MBL frétt sem reyndar er ekki alveg rétt.



Skrifað 5.3.2008 kl. 10:33 af

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 92833
Samtals gestir: 35796
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 10:20:50
Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 92833
Samtals gestir: 35796
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 10:20:50
eXTReMe Tracker