Blogg
13.3.2010
Ótitlað
Ég er búin að komast að því að mér finnist blogg miklu skemmtilegari en facebook. Nenni ekki lengur að lesa samhengislaus komment vina minna um hor, ælupestir, veður og færð. Langar miklu frekar að fá betri og skemmtilegri frásagnir um það sem vinir mínir eru að basla við á bloggsíðum þeirra. Verst að fésbókin virðist hafa tortímt bloggáhuga fólks.
Reyndar hef ég ekkert efni á að kvarta. Bloggsíðan mín búin að vera í dauðadái í nokkra mánuði, en nú ætla ég að reyna að bæta úr því.
Annars veit ég hreinlega ekki hvar ég á að byrja. Það hefur nú svo margt á mína daga drifið síðan síðast. Búin að halda mín fyrstu jól með öllum börnunum, búin að gifta mig og eignast nýtt gamalt hús frá 1914... sem ég einmitt gifti mig líka í.
Hmmm...þetta er erfiðara en mig minnti. Þarf að láta mig hverfa í smá stund á meðan ég losa um ritstífluna. ;o)
Flettingar í dag: 27
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 51
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 92659
Samtals gestir: 35752
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 16:54:01
Flettingar í dag: 27
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 51
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 92659
Samtals gestir: 35752
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 16:54:01
